3.2.2013 | 15:05
En hvað þá, innlimun?
Þessi málflutningur skýrir sig sjálfur og fyrir mér lýsir hann liði sem búið er að gefast upp í alþjóðlegu samstarfi.
EES dugar ekki til lengri tíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2013 | 15:02
Hvernig þá?
Makrílkvótinn 15% minni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2013 | 13:13
Menn og konur
Ég get nú ekki annað en sett orð í belg eftir þetta skemmtilega útspil fyrrverandi forMANNS Samfylkingarinnar.
Samkvæmt hennar höfði, virðist vera, eru konur ekki menn.
Það á að sjálfsögðu að hlægja að þessu en samt er mér ekki hlátur í huga, ég skil ekki afhverju...
Jafnaðarmannaflokkur ofan á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2013 | 23:48
Ærið verkefni framundan
Það mun taka áratug hið minnsta að vinda ofan af pólitískum skollaleik samfylkingarinnar og vinstri grænna. Sá tími mun ekki verða tími sátta eða snjallra lausna, það er búið að sjá til þess að meirihluti Þjóðarinnar er kominn upp á kant við núverandi stjórnvöld og útspil Katrínar er ekki til þess fallið að fólk líti upp úr skotgröfunum.
Trúlega væri auðveldast að setja fram frumvarp eftir kosningar sem myndi fella úr gildi öll lög sem sett hafa verið í stjórnartíð þessarar óstjórnar. Ég man einfaldlega ekki eftir einu einasta atriði sem skiptir máli af þessum 200 lögum sem þessir flokkar hafa troðið ofan í kokið á Alþingi síðustu fjögur árin.
þannig er nú það.
Kosið um ESB 2014 eða 2015? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2013 | 20:57
Draumórar Gnarrsins
Fjölga kaupmanninum á horninu...
Hvar hefur þessi maður verið? Þegar ég man eftir mér var kaupmaður á horni Barónsstígs og Njálsgötu. Reyndar horfðust þeir tveir á horn í horn.
Það mun aldrei koma aftur sama hvað Gnarrast verður. Eina sem mér dettur í hug sem gæti gengið er eitthvað í líkingu við sjoppuholuna sem sí og æ er verið að níðast á að hálfu lögreglunnar og er þarna í grendinni. Fínt að opna fyrir slíka kaupmenn í "nágreninu"........
Kaupmaðurinn á horninu komi aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2013 | 16:38
Þá vitum við hvar hann stendur
Guðmundur opinberar sjálfan sig og sinn flokk á glæsilegan máta. Það fer enginn í grafgötur með hvaða hug hann ber til þess að "skoða í pakkann". Hann nefnir þann gerning sínum réttu orðum, að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Það furðulega við þetta er að það kannast ekki nokkur maður á Alþingi við það að hafa sótt um aðild að sambandinu, nema hann.
Er þetta flókið? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.1.2013 | 13:46
Skattar og skuldir
Gaman fyrir Garðbæinga að horfa á eftir þeim möguleika að lækka útsvar en ákveða það í staðin að greiða skuldir óreiðusveitarfélags.
Aldrei hefði ég fyrir mitt litla greitt atvkæði með þessari sameiningu, ef ég byggi enn í Garðabæ.
Nýr skuldabréfaflokkur vegna skulda Álftaness | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2012 | 23:35
Þjóðveg 1 um firði
Aðstoðuðu ökumenn á Breiðdalsheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2012 | 22:38
Íslenskan enn og aftur
Mér finnst þetta ekki sæma hinu ylhýra máli.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/01/thyrfti_jafnvel_fjora_flokka/
"Fengju samanlagt 45,8% fylgi
Ef miðað er við þjóðarpúls Capacent Gallup nú fengju Samfylkingin, VG og Framsóknarflokkurinn þannig samanlagt 45,8% fylgi ef vilji væri fyrir því að mynda slíka ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins. Slík ríkisstjórn gæti þó hugsanlega fengið meirihluta á þingi ef nógu mörg atkvæði dyttu dauð niður vegna þess að minni framboð næðu ekki 5% lágmarkinu og því enga þingmenn.
Hins vegar gæti slík ríkisstjórn haft mjög nauman meirihluta og verið þannig bæði mjög brothætt samstarf í ljósi þess sem og fjölda flokka svo ekki sé minnst á mögulegan málefnaágreining. "
Auðvitað eru þetta hártoganir en af hverju er ekki "gæti" í síðari greinaskilinunum skipt út fyrir söginini að muna, þannig að í orðanna hljóðann yrði þetta þannig: "Hins vegar myndi slík ríkisstjórn ..."
Það er búið að tala um möguleikana í fyrri greinaskilunum, restin hlýtur að vera tengd aðalatriðum og þarfnast vart tvítalniningar.
Þyrfti jafnvel fjóra flokka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2012 | 13:06
Gott vont
Það eru tvær hliðar á tvíeyringinum + röndin. Sé ekki betur en að röndin hafi komið upp hjá mér núna því að tvískinnungshátturinn er hér í algleymi.
Á þessu svæði er fyrir urriðastofn sem ég veit ekki til að njóti vafans. Svæðið hlýtur að hafa verið rannsakað samt sem áður en þær niðurstöður hafa ekki verið bornar á torg, að mér vitandi.
Ég kalla því eftir þeim hér og nú, til að þurfa ekki að horfa á röndina endalaust.
Nýr laxastigi í Selá skilar árangri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sindri Karl Sigurðsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar