Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.1.2012 | 18:05
Hvað merkir frasinn að auðlindir séu í þjóðareign?
Væri nú ekki nær að rentan myndi dreifast jafnt yfir þjóðina, óháð bitlingum stjórnmálamanna hvers tíma og án þess að búin sé til einn ein jatan fyrir nýja ríksisstofnun?
Ávísun frá skattinum árlega með þeirri upphæð sem fæst út þegar auðlindagjaldinu er dreift til þjóðarinnar. Þetta myndi ég telja sanngjarna, einfalda og gagnsæja leið án afskipta ríkisvaldsins.
![]() |
Vilja stofna auðlindasjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2011 | 08:59
30+9=124???
![]() |
Sækja í betri laun í útlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2011 | 22:21
Steinar úr glerhúsi??
Fyrst segir þessi manneskja að lögreglan sé ómissandi, næst að það sé hægt að fá sjálfboðaliða, já sjálfboðaliða, til þess að taka við því sem fólk telur að hún eigi skilið. Næst furðar hún sig á því að það skuli enginn standa með henni....
Hvenær skilur þessi manneskja að best væri fyrir alla aðra en hana, að skríða í kústaskápinn og loka á eftir sér?
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2011 | 21:18
En hinir??
Eru bara tveir stjórnmálaflokkar í landinu?
Hvað með afstöðu Samfylkingarinnar??? Lét hún kannski gera þessa könnun?
![]() |
65,7% andvíg málshöfðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2011 | 15:35
Hagfræðin og fylgifiskar
Hvort ætli sé viturlegra með tilliti til þjóðarhags:
Smábátar | Togari | ||
Fjöldi báta | 185 | 1 | |
Fjöldi á bát | 1 | 12 | |
Samtals stöðug. | 185 | 12 | |
Aflaheimild (tonn) | 500 | 500 | |
Dagafjöldi | 7 | 26 | |
Aflaverðmæti | 116.000.000 | 116.000.000 | |
Kr/kg. | 232 | 232 | |
Verðmæti á bát | 627.027 | 116.000.000 | |
Aflaverðmæti pr mann | 627.027 | 9.666.667 | |
Aflaverðmæti pr. Dag | 16.571.429 | 4.461.538 | |
Fjöldi daga til að ná 10 millj. Pr mann | 112 | 27 | |
Veiði stöðugildi pr. dag | 386 | 1603 | |
Magnþörf | 7.974.138 | 517.241 |
Það eru jú allir sammála um að auðlindin sé takmörkuð... En þetta gæti líka mögulega verið það sem búið er að bíða eftir í fjölda mörg ár; að gera eitthvað annað...
![]() |
Strandveiðar stöðvaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2011 | 01:12
Ungur nemur gamall temur
Varla telst ég gamall en þó ekki ungur. Að sjálfsögðu á ekki að semja um neitt fyrr en það sem hægt er að semja um er í hendi. Það vita allir nema þeir sem gefa sér niðurstöður fyrirfram. Ruglið sem búið er að vera í gangi er einfaldlega vegna þess að búið er að reyna að leysa jöfnuna afturábak.
![]() |
Taka málið upp að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2011 | 16:41
Sirkusinn!
Jóhann prins vill að sjálfsögðu hafa undirtökin og ræna byggðir landsins, sem hafa úr einhverju að moða, lifibrauðinu og færa það 101 kaffihúsaklíkunni. Í hennar farteski er m.a. sú medalía að koma til með að eyða í kringum 70 milljörðum í bætur handa fólki sem vantar vinnu, við hæfi. Þó svo að þessi tala sé með þessu ári innanborðs, þá sér ekki fyrir endan á hamingjunni á kaffihúsunum.
Að setja síðan sirkusinn upp þannig að ljótu sægreifarnir séu þjóðfélagslega vondu mennirnir og með það í farteskinu að hamra nógu lengi á falsaðri staðreynd til að hún verði viðurkennd, í þágu þjóðar og réttlætis, þá skuli leggja þær byggðir, sem eftir eru utan kyrkingarólarinnar (kraginn öðru nafni), í kistuna og grafa langt, langt niður. Eflaust er þetta eitt af þeim plottum til þess að draga upp, svo lítið beri á, leikjafræði allra styrjalda; benda á sameiginlegan óvin og beina sjónum sem flests fólks frá raunveruleikanum, sem er ekki frekar dapur, heldur án undankomu eins og staðan er.
Sjávarútvegur á Íslandi hefur aldrei átt Ísland, svo að því sé til haga haldið. Ég man ekki til þess að hafa séð það skrifað og bundið. Síðasta aldarfjórðunginn eða svo hefur þessi atvinnuvegur fengið að vera aðalatriði, síðan aukaatriði og nú allt í einu er hann aftur aðalatriði. Ekki er hann núna í þjóðhagslegum skilningi aðalatriðið heldur í réttlætanlegum (hvernig sem hægt er að búa það hugtak til). "Vegferðin" vill eðlilega stinga undir stól, þeirri staðreynd að það geta ekki margir veitt sama fiskinn, slægt hann og flakað.
Þessi atvinnugrein, sem stóð undir á annan tug þúsunda starfa fyrir um 30 árum, getur aldrei staðið undir sama starfsmannafjölda, þegar búið er að skerða aflaheimildir um rúmlega helming í botnfiski. Það er öruggt. Síðustu 15-20 árin eða svo hafa fjölmiðlar, pólitíkusar og menntakerfið svo eitthvað sé tekið haldið því statt og stöðugt fram að það sé skítavinna "að vera í fiski". Og nú eru skilaboðin: Komið ykkur í burt! Við ætlum að eiga þetta, með hurðum og körmum... Þið gerið bara eitthvað annað...Hvernig ætlast hin sama ríkisstjórn til þess að það verði til fleiri störf í sjávarútvegi með slíkum skilaboðum. Hvaðan á það fólk að koma? Kaffihúsaliðið getur bara barið í búsáhöld, sett upp leikrit og sirkus. Það þarf jafnframt hvíld þess á milli til að geta skrifað um ljótu kallana, einn hér og annar þar. Vonlaust til hefðbundinnar vinnu...
Ekki er ríkisstjórnin að gera neitt í þessum málum til batnaðar. "Ögurstund í sjávarútvegsmálum", það er eins og atvinnugreinin sé á vonarvöl og komi brátt í buxnabrot ríkisstjórnarinnar. 80 manna starfsstétt er att í verkfall vegna hvers? Jú kannski til að vera fórnarpeð þeirrar orrustu sem er að hefjast. Það er í það minnsta ekki vilji stjórnvalda að koma að kjarasamningum þannig að ekki upp úr sjóði. Það er nokkuð ljóst, því það hentar ekki sirkusnum og skúespilinu sem búið er að skrifa í handritið.
![]() |
Ögurstund í sjávarútvegsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2011 | 22:47
Er Guð undanskilinn?
Hvernig í fáránleikanum getur ærulaus maðurinn reynt að klína þessari vitleysu, sem hann sjálfur sá um, á sveitarfélögin í landinu? Nú er búið að snúa; atvinnurekendum, stéttarfélögum, almenningi og nú er reynt að koma sveitarfélögum inn í alsherjarbull ríkisstjórnarinnar. Það er lítið annað eftir en að biðja = krefja, kirkjuna um að bjóðast til að koma Guði sjálfum inn í hringavitleysuna.
Það er réttast fyrir hann að líta sér nær og byðjast hjálpar.
![]() |
Allir þurfa að axla ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2011 | 17:29
Ef það hefur ekki hækkað þá er best að hækka það!!
Þetta er eins og allt annað hjá Jóhanni prins og fógetanum hans. Ef það kostar lítið (að þeirra mati) þá er alveg hægt að hækka gjaldið aðeins. Bara 40%...
Á meðan á þessu gengur þá er Jóhann prins í því að láta semja plagg sem látið er heita 20-20, sem inniheldur meðal annars fallegan texta um hvernig þjóðin og þjóðfélagsleg gerð hennar kemur til með að líta út eftir nokkur ár. Þar er meðal annars minnst á nýsköpun, en flest allt mögulegt og ómögulegt er tínt þar inn, en miðað við grunninn sem þetta plagg á að byggja á er nær að kalla það 20-20=0 því það er ekki minnst mikið á það hvernig leysa á -8% hagvöxt, hvaða skref verða tekin til að leysa neikvæðan hagvöxt. Hvernig byggt verður upp.
Það verður ekki gert með fleiri opinberum stofnunum, annari gjaldtöku umfram skatta og flóknara skattkerfi.
Það er minnst á í þessu plaggi að lækka GINI stuðul í 25. Reikna með að það náist með því að þeir sem eru hæstir í tekjum fari og borgi sína skatta annarstaðar. Þá lækkar stuðullinn.
![]() |
Gjald fyrir einkaleyfi hækkar um 40% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2010 | 19:54
Víxilverkanir
![]() |
Afnema víxlverkun bóta og tekna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sindri Karl Sigurðsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar