Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Já það eiga sumir gullforða fyrir sínum fæti!

Í öllu bullinu þá á að sjálfsögðu AGS gullforða, ekki trúir hann á annan gjaldmiðil...

 Hvar er okkar gullfótur (í Bank of England?) hvers virði er hann núna?


mbl.is IMF selur af gullforða sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að leita í aðra smiðju en þá sem brást?

Þarf alltaf að vera að finna upp hjólið? Hvernig væri að skoða löggjöfina í Bandaríkjunum varðandi fjármálastarfsemi og tengdra greina?

Kannski eru þeir með aðeins öflugri löggjöf, sbr. Maddoff málið?


mbl.is Komið að endurskoðun á umgjörð fjármálakerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar hitti skrattinn ömmu sína!

Hvernig ætlar samfylkingin að snúa sig út úr málinu í þetta skiptið?

Sérlegur erindreki Jóhönnu í Seðlabankanum "nennir ekki að eyða sínum tíma í útúrsnúninga".

Þetta er orðið fyrir neðan allar hellur, farið að láta ykkur hverfa og ekki væri verra að játa heilaþvottarþvæluna í leiðinni.


mbl.is Stendur með lögfræðingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á nú ein af "svörtu" atvinnugreinunum að redda okkur?

Veit að þessi fyrirsögn fellur ekki vel í kramið en er samt staðreynd. Veit ekki um atvinnugrein sem getur lifað á því að fá tekjur fjóra mánuði á ári, því miður, ekki veitti okkur af að hafa nokkrar slíkar og þá með möguleika á fimmta mánuðinum. Það er jú þannig að þeir hinir fyrri hljóta að vera búnir að greiða allt sem þarf til að reka greinina og aukamánuðurinn er því ekkert nema "hreinn hagnaður".

Að sjálfsögðu koma breytingar til hækkunar á sköttum, beinum og óbeinum alltaf til með að þyngja rekstur, hvort sem um er að ræða heimili eða fyrirtæki. Ríki og sveitafélög eiga ekki að komast upp með að hækka skatta þegar þau eru illa rekin.

 


mbl.is Lýsa furðu á skattahækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn tími til að opna augun

Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf. Hef sagt það margoft og get haldið því áfram, að það á að gefa þetta hús, með því skilyrði að það verði reist og rekið af þiggjanda.

Ef ekki þá er ódýrast, til lengri tíma litið, að rífa húsið og fylla upp í grunninn.

Sorrý, en reikningsdæmið getur aldrei gengið upp.


mbl.is Vill að áform um tónlistarhús verði endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfvirkni hvað? Hvar er hagsmunagæslan?

Þetta er alveg ótrúlegt.

Að opinber embættismaður skuli setja frá sér skoðun sem þessa! Þetta er ástæðan fyrir því að við eigum ónýt raforkulög, að flutningar á milli landshluta séu of dýrir og svo mætti lengi telja.

Segja þessu Brussel liði upp!! Þetta fólk er í vinnu hjá mér en ekki sjálfusér...!!!!!!!!!!!!!!!!!

Kvarta yfir því að hlutir séu ekki samþykktir sjálfvirkt, án athugasemda og skoðana er algjör firra. Fáum við þetta yfir okkur í framhaldinu? Sjálfvirk löggjöf án möguleika á höfnun á okkar eigin löggjafarsamkundu?


mbl.is Óljóst með samþykkt ESB-laga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafn líklegt og neðangeint... ekki satt?

 

 

"Það eru engin áform uppi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um að taka aftur upp eignaskatt í fyrri mynd. Sú hugmynd hefur hins vegar eðlilega komið upp í grasrót hreyfingarinnar að skoða hvort einhver tegund skattlagningar á mjög tekjuhátt stóreignafólk komi til greina til að mæta þeim mikla fjárlagahalla ríkisins sem fyrirsjáanlegur er á næstu árum."

 Hvað er "mjög tekjuhátt stóreignafólk" í þessu sambandi?

 Spyr sá sem ekki skilur en vill vita...


mbl.is Kolbrún segir þingflokk VG ekki hafa lagst gegn olíuleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný atvinnubótavinna hins opinbera!

Ef Steigrímur væri með hár væru lýsnar af mínum lubba komnar í hans. Væri ekki nær að nýta opinbera starfsmenn í þágu þess að efna loforðin Steingrímur? Af hverju eru þeir starfsmenn sem hafa ekkert betra að gera ekki nýttir í að fletta ofan af öllu "samsærinu". Það átti að fara í það að fullum krafti, hvar eru mennirnir sem settu þjóðina á hausinn? Væri ekki nær að nýta kraftana alla í sömu átt? 

Hvað kemur næst?


mbl.is Mat lagt á þjóðhagsleg áhrif hvalveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld!!

Til hamingju með árangur þinna manna... Það er í mínum huga ekki sjálfgefið að eiga snilling eins og Alfreð.  Það eru enn til alvöru Íslendingar.
mbl.is Enn einn sigurinn hjá Alfreð og Kiel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagt það áður og segi aftur!

Eina viturlega í þessu máli er að gefa Hilton keðjunni eða ámóta erlendum aðila húsið gegn því að hann klári að byggja það. Jafnframt þarf að vera skilyrt að sá hinn sami reki húsið.

Eitt er að byggja og annað að standa undir rekstrarkostnaði.

Algerlega ábyrgðalaust á sama tíma og ætlunin er að skera niður í opinberum rekstri.

Varðandi vinnu og atvinnusköpun þá skapar það miklu fleiri störf að hefjast handa að gera við eitthvað af þessum opinberu byggingum sem hafa ekki séð viðhald í mörg ár.

Þau störf eru jafnframt um allt land.


mbl.is Tónlistarhúsið fær grænt ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sindri Karl Sigurðsson

Höfundur

Sindri Karl Sigurðsson
Sindri Karl Sigurðsson
Jafn trúaður og við hin!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • ...438_1166335
  • Veiða og sleppa hvað?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband