21.10.2009 | 14:11
Þvílíkt bull
Með fullri virðingu þá stendur þessi pistill hjá greinarhöfundi á haus!! Fyrriparturinn er það sem almannavaldið á að sjá um, hitt er eyrnamerkt nú þegar í skattheimtunni, t.a.m. vegafé. Ef þetta er rétt eftir haft, þá er Ögmundur kominn í sama gírinn og hann hefur verið í síðan ég man eftir, með fáum undantekninga skiptingum, síðast í bakkgír í sumar. Nema að það hafi verið öfugt.
Ég get ekki séð annað en að Ögmundur ætli sér að þjóðnýta lífeyrinn minn, til að komast hjá því að taka leiðinlegar ákvarðanir. Ákvarðanir eru nefnilega annað hvort leiðinlegar eða skemmtilegar. Erfiðar ákvarðanir eru ekki til nema hjá þeim sem eru fullir ótta við að taka þær.
Sök sér að byggja brú eða göng, það sparar þó og bætir til framtíðar og komandi kynslóðir koma til með að njóta þeirra verka.
Ég væri til í að lána þér þessa peninga, Ögmundur, ef ég fæ kvittað upp á að það komi samsvarandi skattalækkun á móti. Annars þarftu að ræna mig og ég tek ekki vel á móti slíku hyski.
![]() |
Lífeyrissjóðir láni í velferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2009 | 01:40
Nú mun stálið hamrað!
Fyrisögnin segir sig sjálf. Hér verður ekki gefin eftir ein tomma, ekki ein!
![]() |
Icesave-fyrirvörum breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2009 | 22:16
Mikið meira mest
Magnið er ekki málið í kerfi sem snýst ekki um að veiða sem mest. Hvert var aflaverðmæti á kílógramm upp úr sjó?
ps. það er fáránlegt að það skuli ekki vera til færsluflokkur á bloginu sem tekur á iðnaði og framleiðslu. Tala nú ekki um sjávarúvegsmál...
![]() |
Hornfirskur smábátur veiddi mest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2009 | 14:59
Hvaða gjaldeyri?
Nú skil ég ekki alveg þessa setningu:
"Bjarni spurði Steingrím einnig hvers vegna uppgjör á milli nýja Landsbankans við skilanefnd þess gamla væri tiltekin í erlendri mynt. Svaraði Steingrímur því til að það þjónaði best hagsmunum beggja aðila og drægi úr gjaldeyrisáhættu sem annars hefði þurft að sjá fyrir með öðrum hætti."
Er ekki lögeyrir í þessu landi? Hvaða gengisáhættu og hvar lendir hún "með öðrum hætti"? Er ekki verslað með íslenskar krónur hér á landi? Bankinn er jú íslenskur.
Það er margt annað sem ég er ekki búinn að ná í umræðu síðustu tveggja daga, en það er ekki hægt að skilja málatilbúninginn nú öðru vísi en að það sé jafnframt ætlunin að sem flestir skilji sem allra minnst. Enda getur gengisáhættan ekki legið annarstaðar en hjá okkur, þ.e. mér og þér.
Nær að borga út í okkar lögeyri, hélt reyndar að lögin settu kvaðir í þá átt.
![]() |
Geta kannski selt eignir Landsbankans fyrr en ella |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2009 | 16:13
Jóhann prins er samur við sig
Já það er margt fáránlegt í heiminum og þetta er eitt af því sem fellur undir þann flokk.
Af hverju getur Jóhann talað á okkar ylhýra en síðan er bannað að þýða á sama tungumálið, spurningalistann sem opinbera apparatið er að berjast við að fylla út í? Og þá í leiðinni að halda þeim spurningum upplýstum fyrir almenning.
Síðan gerir hún að því skóna að þessi sami almenningur skipti svo miklu máli. Jafnvel má skilja það þannig að hún sé tilbúin til að ganga út fyrir gröf og dauða til að ekkert illt komi fyrir.
Samt eru aukaatriðin látin ráða hjá þessu hallarliði frá Nottingham.
![]() |
Ísland í brennidepli á BBC |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2009 | 12:33
Allt of miklar ágiskanir
Furðulegt að það skuli ekki vera hægt að taka vefjasýni úr þorski við Grænland, Færeyjar, Svalbarða, Barentshafi og bera það saman við þann sem veiddur er hér við land, með DNA prófi, þannig að það sé einfaldlega hægt að eyða þessum getgátum og ágreiningsefnum.
Ég er farinn að velta því fyrir mér hvort fiskifræðingar vilji ekki vita meira! Að aukin þekking opni á óþægilega umræðu, sem þeir og stjórnvöld hafi og geti ekki haft stjórn á.
Það er fáránlegt ef svo er. En eftir að merktur skötuselur, af öðru hafsvæði, fannst hér við land fyrir nokkrum árum, þá er erfitt að halda því fram að þorskurinn ferðist lítið um þessi sömu hafsvæði.
![]() |
Afla upplýsinga um Grænlandsgöngur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 12:45
Hægri stjórn í Bretalandi
Það er ekkert annað sem dugar í svona en að taka upp kutann og skera niður.
Það gerir þetta skítabixalið aldrei, betra að benda í okkur hérna heima. Elsta trix í bókinni. Það versta er að Jóhann prins & Co. er að gera það sama við okkur hérna heima.
Hvar er Hrói???
![]() |
Milljón í skuldir á sekúndu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2009 | 08:05
Látið það gjaldfalla.
Látið lánið gjaldfalla.
Get ekki lesið þetta öðruvísi en að það geti ekki skipt máli. Steingrímur er greinilega að kaupa sér tíma í von um að málið leysist á ekki pappírunum sem hann klárlega nefnir svo.
Hvar er Jóhann prins?
![]() |
Sáttur við þróun mála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2009 | 23:01
Já það eiga sumir gullforða fyrir sínum fæti!
Í öllu bullinu þá á að sjálfsögðu AGS gullforða, ekki trúir hann á annan gjaldmiðil...
Hvar er okkar gullfótur (í Bank of England?) hvers virði er hann núna?
![]() |
IMF selur af gullforða sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2009 | 22:57
Ég get upplýst þig Anna mín
![]() |
Andarnefjur aftur á Pollinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sindri Karl Sigurðsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar