Það á ekki að leggja neitt niður!!!

Þetta er að sjálfsögðu ryk sem sett er í augun á venjulegu fólki. Hér á ekki að spara eina krónu í innanbúðarrekstri ríkisins frekar en fyrri daginn:

..."um að samræma niðurlagningu Varnarmálastofnunar og samþættingu verkefna hennar við hlutverk annarra opinberra stofnanana við áform um stofnun innanríkisráðuneytis."

Segir sig sjálft að Össur segir engum upp.

 


mbl.is Varnarmálastofnun lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur eiga ekki að vera heima

Þetta eru skilaboð "Jóhanns prins".

Í stað þess að gera öðru höfuði fjölskyldunnar kleift að vera heima og spara þannig skólavistun og leikskólagjöld.

Að auki myndi það létta undir atvinnuleysistryggingasjóði. Það þarf líklegast að fylla í skarð þess sem velur að sjá um uppeldi sinna barna, í stað þess að vera á vinnumarkaði.

Ég fullyrði að það eru þó nokkuð margir sem myndu velja þennan kost, ef sá möguleiki væri í boði. Og ekki kæmi mér á óvart að stór meirihluti þeirra væru konur. Það finnst "prinsinum" slæmt og sníður meira að segja sína tíund eftir því hvað "hann" telur best fyrir almúgann.

Að sjálfsögðu er "fógetinn" sama sinnis.


mbl.is Aukin skuldabyrði í skuldakreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir einstaklingar

Þetta er alltaf sama ruglið. Einstaklingar þó íslenskir séu geta ekki skuldbundið mig og aðra til langrar framtíðar vegna sinna gjörða. Til þess þyrftu þeir að hafa óskorið umboð, sem þeir hvorki höfðu né hafa.

Að bjóðast til þess að borga féflettinguna fyrir þá er síðan algerlega til þess fallið að kóróna gullkálfinn.

Persónulega deponera ég þessari greiðslu.


mbl.is Klár og hrein tengsl Icesave og ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangurinn helgar meðalið

Þessi grein í euobserver er hin fróðlegasta og lyftir að hluta til grímunni af EU. Við erum jú ekkert annað en peð á taflborði hinna stærri. Það kemur berlega í ljós:

"The EU is keen to get a toehold on the Arctic, with its enormous oil and gas potential and shipping possibilities via Northwest Passage. The bloc itself has no territorial access to the pole. With Iceland on board, the EU would instantly be on the Arctic Council, membership of which has been blocked by Canada."

Mér finnst einfaldlega gott að vita til þess að EU eigi ekkert tilkall til Norðurhafa og að við séum það sem stendur í vegi fyrir því tilkalli.


mbl.is Ummæli fjármálaráðherra vekja athygli í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar ekki fangelsi?

Upplagt að nýta þetta í slíkt. Þarf ekki að gera neitt meir, fangar í þegnavinnu klára innréttingar og tilheyrandi á næstu tja... 30 árum eða svo. Nefni engin nöfn en sumir eru betur fólgnir til verksins en aðrir.

 


mbl.is Reisugilli í Tónlistarhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúbburinn; "skynseminn ræður"

Það varð aldrei svo að ekki væri hægt að endurvekja gamla Trabba slagorðið frá í denn...

Mér finnst skynsemin vera á undanhaldi, hjá þeim sem um málið eiga að fjalla þessa síðustu mánuði, svo ekki sé meira sagt

 


mbl.is 29% vilja ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkbann?

Hvenær verður kornið komið sem fyllir mæli Villa og Co.? Er í raun komið að því að hóta verkbanni og standa síðan við það?

Það væri frekar ný Latína, oftast er þetta nú í hina áttina.


mbl.is „Þetta mjakast áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökþrota!?

Eins og venjulega snýst umræðan um baksýnisspegilinn hjá núverandi stjórn. Ekki nema von að skútan sé uppi á skeri. Horfðu á innsiglingarljósið, annars fer illa.

Hefði verið betra að Landsbankinn væri áfram í ríkiseigu. Þvílíkt rugl, EFTA/ESA dómstóllinn hefði löngu verið búinn að dæma hinum bönkunum í vil, samkeppnislega séð og því enginn Landsbanki í ráðherratíð Steingríms.

Hefði kannski mögulega ef og líklega. Bíð eftir að þessi orð heyrist öll í sömu setningunni og endi síðan á þessum ofnotuðu orðum ...líklega farið betur ef svo hefði verið.


mbl.is Mikill hiti í þingsalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sindri Karl Sigurðsson

Höfundur

Sindri Karl Sigurðsson
Sindri Karl Sigurðsson
Jafn trúaður og við hin!
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • ...438_1166335
  • Veiða og sleppa hvað?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 27852

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband