8.3.2010 | 12:15
Þjóðnýting óbrunnins sparifés
Ríkisstjórnarflokkarnir eru komnir á sama stað og bankarnir fyrir fall þeirra, hirða fé almennings til eigin nota og fá lífeyrissjóðina, sem við eigum með hurðum og körmum, til þess að skríða upp í til sín og fjármagna fjárfestingar ríkisins.
Þessar fjárfestingar eru jafnframt þess eðlis að þær koma aldrei til með að skila arði til handa þeim sem lögðu peningana í þær. Við sem eigum þessa peninga erum í þokkabót skattpínd tvisvar til þess eins að greiða þessa þvælu, því annars fá lífeyrissjóðirnir sjálfir enga rentu á fjárfestinguna.
Nær væri fyrir þá að fjárfesta í orkuöflun og okkur hin að kaupa eðalmálma í stað þess að brenna peningum.
Undirbúningur langt kominn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Sindri Karl Sigurðsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nú málið. Það smáræði, sem þjófarnir voru ekki búnir að stela frá lífeyrissjóðunum, hefur nú verið gert upptækt í s.n. Framtakssjóð, þar sem þjófarnir fá að valsa um á skítugum skónum. Verði eitthvað eftir plús það sem kemur mánaðarlega frá þessum vesalingum, sem enn hafa vinnu, verður það tekið í þetta sem þú talar um hér að ofan. Nær hefði verið að taka þessa aura sem eftir voru til að lækka skuldir í íbúðarhúsnæði fólks á aldrinum 20 ára til 45 ára.
Alkinn (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.