Þjóðfáninn

Þjóðfáni okkar er ekki leiksloppi umræðunnar. Hann er óumdeildur og lög um hann eru óumdeild. Vanvirðing, hvort heldur óafvitandi eður ei, varðar við lög.

 


mbl.is HÍ flaggar í heila stöng og brýtur gegn úrskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirhyggja ?

Ég er sammála síðasta ræðumanni. Það að loka vegum af því að hálfakandi ferðamenn séu á ferðinni er röng nálgun. Mér finnst persónulega að það sé fyllilega verjandi að fá að sjá próf og ökuskírteini þeirra sem koma til landsins. Þeir hinir sömu mættu alveg þreyta eitt ökupróf samkvænt íslenskum stöðlum áður en bíll er leigður.


mbl.is „Bara grín“ að loka Reykjanesbrautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sporin hræða

Ég ætla ekki að skrifa pistill um þetta mál en skoðun mín er alveg skýr: Sporin hræða. Gef ykkur sem kíkið hér við slóð á frábæra grein sem hittir höfuðið á naglann og rekur hann í einu slagi.

Ágústa í Vikublaðinu

 

 

 

 


mbl.is Þjóðgarðurinn virðist vera „pólitísk hrossakaup“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt fólk sem situr á Alþingi

Það fer að leka úr þessum bakkafulla læk. Hvar var þessi Halldóra eiginlega síðastliðið sumar? Hvað er hún og hennar líkar að gera inni á Alþingi?

brottfall laga um kjararáð


mbl.is Vill að launahækkun þingmanna verði felld niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðanefndir og siðfræði þingmanna

Get ekki orða bundist og hleyp úr viðjunum. Hvaða sirkus er í gangi á Alþingi? Ætlast þingmenn virkilega til að lausn þeirra siðferðislegu bresta sem þeir bera sjálfir, verði leystir hjá fólki út í heimi?

Ef viðkomandi þingmaður getur ekki horfst í augu við niðurstöðu siðfræðireglna sem hennar eigin flokkur fór fram með á sínum tíma, þá finnst mér að viðkomandi eigi að sjá sóma sinn til að skoða sína eigin persónu í spegli, áður en troðið er yfirþjóðlegu valdi og þar með Stjórnarskránni ofan í kok og í atvikum upp í rass á fólki.


mbl.is Helga Vala vill breyta siðareglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svörtuloft

Eftir að hafa lesið greinargerð bankaráðs SÍ og sérstaklega bókanir bankaráðsmanna er greinilegt að Seðlabankastjóri er original einvaldur og á betur heima á þeim stað sem hann ætlaði öðrum að dúsa á.

Ekki veit ég hvaða málstaður verður dregin upp úr Hel til að bera blak af þeim geðþóttarákvörðunum sem fara fram innan Svörtulofta en það verður fróðlegt að vita hvernig:

1. Alþingi bregst við athugasemdum sem koma fram í máli bankaráðsmanna.

2. Hvernig aðrir sem hafa fengið meðferð SÍ koma til með að snúa sér.

3. Hvort þetta mál sé einfaldlega ekki nú fyrst rétt komið á þann stað að búið sé að tendra þráðinn í tundrið.

 


mbl.is Öll stjórnsýsla SÍ verði endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fá í hnakkann

Ég hef fylgst með fiskirækt í nokkuð marga áratugi, verið partur af henni og nýtt hana til veiði og tekjuöflunar. Nú ber svo við að veiðiréttaeigendur eru farnir að sverja af sér, að hentugleika, uppeldi og afhendingar á seiðum til sleppingar í ám og vötnum. Að sögn hefur núverandi forstjóri Haf og vatn sagt að lífslíkur þessara seiða sem sleppt var í denn, væru mjög takmarkaðar vegna rangra aðfara við þær.

Ef grafið er djúpt í skýrslur, sem eiga að vera aðgengilegar inni á Haf og vatn en geta tæpast talist vera svo. Sést hvernig haldið er utan um sleppingar á laxaseiðum og sjóbirtingi í fallvötn frá því á 7unda áratugnum fram í þann 9unda, eða um 30 ára skeið.

Þar kemur margt fróðlegt fram sem ég hvet þá sem lítið vita um málið að lesa. Orð forstjóra Hafs og vatns eru innihaldslaus að því marki að í mjög mörgum tilvikum var staðið eins vel að þessum sleppingum og best er gert í dag. Ég er til vitnis ef svo ber undir.

Síðustu árin er auðvelt að benda á tvær ár þar sem ekki síður vafasamt á sér stað gagnvart inngripi í náttúruna en eldi á norskum laxi (sem nb. hefur átt sér stað síðan Ísnó var með klak og hrognaframleiðslu á norskum laxi í Kelduhverfi

Ein þessara áa er Selá í Vopnafirði en þar er búið að opna fyrir laxagengd og sleppa seiðum á vatnasvæði urriða sem hefur að öllum líkindum (hef ekki séð neina rannsókn þar um, enda ekkert umhverfismat þarft) er búinn að búa þar í árþúsundir. Enginn kvartar undan því, spyr spurninga eða ber tilfinningar sínar á torg, líkt og framsetning veiðiréttahafa byggir á.

Hin áin er Jökla, þar eru bleikjustofnar og hafa alltaf verið. En skítt með það.

Málstað að verja? Hvaða málstað hafa veiðifélögin að verja?


mbl.is Telja fiskrækt í ám og eftirlit í ólestri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OrkuPakkinn

Það er gott að það séu allir sammála en það er verra ef það ristir ekki dýpra en það. IceSave í mínum huga var óútfylltur víxill en þetta mál er Miklu stærra en krot á pappír. Girðið ykkur í brók og komið þessu til föðurhúsanna.


mbl.is Vilja ekki innleiða orkupakkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr einokun í ?

Réttilega er bent á að dreifiveitur líkt og Rarik starfa með ákveðið forskot. Rarik sér um dreifikerfið og óumdeilanlega hlýtur hið sama að hafa umsjón með því. Ætlar viðkomandi að flytja rafmagn um sama streng or Rarik lagði í jörð og ætlast hann til að Rarik gefi þeim hinum sama pláss í strengnum af því bara?

Það má líka spyrja sig að því hver á að sjá um viðgerðir og bilanir á þeim strengjum sem Rarik lagði og Íslensk orkumiðlun ætlar að dreifa sinni orku með? Samkeppnisaðilinn eða þeir sjálfir? Varla ætla þeir að fara að plægja upp heilu bæjarfélögin til að koma sínum streng í samband við eitt hús? Hver borgar það?


mbl.is Vanþróaður orkumarkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru menn

Það er gott að vita til þess að við eigum alvöru menn sem taka að sér alvöru verkefni. Það er ekki verra að þeir hinir sömu séu án tepruskapar og sjálfshóls.

Það er þessvegna sem við þurfum að hæla sérstaklega mönnum sem hæla sér ekki sjálfir.


mbl.is Tuttugu manns um borð þegar mest lét
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Sindri Karl Sigurðsson

Höfundur

Sindri Karl Sigurðsson
Sindri Karl Sigurðsson
Jafn trúaður og við hin!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • ...438_1166335
  • Veiða og sleppa hvað?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband