Frú ráðherra

Er hugmyndaauðginn svo snauður að ekki sé hægt að finna leið framhjá einum einföldum hlut? Settu eitt hak þegar miði er keyptur og annað þegar skattskýrslan er útfyllt og málið er dautt.

Síðan er önnur leið og það er að girða sig í brók og gefa puttann til þeirra sem ybba sig.


mbl.is Kallar á komugjöld í innanlandsflugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsileg frammistaða

Fyrisögnin nær ekki nema rétt svo að gefa til kynna þau afrek sem eru í gangi í sundlandsliðinu þessi misserin. Frábær árangur og það er ekki eins og heppni ráði för, þetta gerist ekki nema með þrotlausri vinnu og réttu hugarfari.


mbl.is Hrafnhildur 1/100 úr sek. frá heimsmethafanum og í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri nú að lækka skatta

Ríkishítin sogar til sín það sem hún þarf og oftar en ekki aðeins meira (alltaf reyndar). Hvernig væri nú að lækka skatta og gera landið samkeppnishæfara um búsetu en löndin í kringum okkur?

Panama, banana hvað. Gerið þeim sem bera skattbyrðarnar vel heimafyrir, útrýmið orsökum fyrir banana pakkanum, það mun leiða til bættra lífskjara, betri mórals og betri innheimtu á gjöldum hins opinbera.

 


mbl.is Skuldirnar niður í 26% árið 2021
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem koma skal?

Er það viskulegt að fólk úr lífeyrissjóðakerfinu sitji í stjórnum fyrirtækja í boði lífeyrissjóða? Spurningamerkið má gjarnan vera stærra ef út í það er farið.

Pétur Blöndal heitinn talaði um fé án hirðis við ýmis tækifæri. Að sama skapi ætti að vera hægt að búa til lýsandi máltæki um þetta ákveðna atriði.

 


mbl.is Felldu einn sitjandi stjórnarmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyttar fjaðrir

Birgitta er takast að reyta af sér fjaðrirnar þessa dagana. Nýju föt keisarans koma þá vel í ljós í framhaldinu. Hvernig hún fær það út að vaða í forsetann með því að segja að ábyrgð hans sé orsök er mér algerlega hulin ráðgáta en sú gáta leysist væntanlega þegar allar fjaðrirnar eru farnar.


mbl.is Forsetinn skapaði óvissuna sjálfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilað lögsókn?

Þetta hlýtur að vera eitthvað beyglað eftir þýðingar úr þýsku yfir í okkar ylhýra. Það getur enginn þjóðhöfðingi heimilað eða bannað að fara eftir lögum er það? Missti ég af einhverju?


mbl.is Sakaði Erdogan um mök við dýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar og undanskot

Er þessi frétt kannski að kristalla ákveðið vandamál? Af hverju nennir fólk að standa í því að fela peningana sína, gefa þá niðjum sínum, eins og í þessu tilfelli og taka þá út úr banka áður en það fer á ellilaun osfrv.?

Getur verið að það sé óréttlátt skattkerfi sem ýtir við fólki og þ.a.l. geri það ráðstafanir til þess að borga ekki aftur skatt af því sem búið er að borga skatt af?

Siðferði virkar nefnilega á báða bóga. Siðferðislega brenglað kerfi býður upp á siðferðislega brengluð úrræði.


mbl.is Fékk 200.000 pund að gjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Skattaskjól''

Það er hægt að finna margt fróðlegt á netinu. T.d. að Tortola lætur túristann borga við komu til landsins, skatt sem nemur $20 með flugi en $5 með skipi. Það er meira en sumir framkvæma og kannski þarf ekki að spá neitt meir í þetta, frekar hysja sig í brók.

Samkvæmt Wikipedia eru 52% af tekjum Tortola vegna gjalda sem fyrirtæki borga (fyrir skattaskjól býst ég við). Restin af tekjunum kemur nánast envörðungu af ferðamennsku. Meðaltekjur vinnandi fólks eru um $2.500 á mánuði, sem er á pari við okkur hér heima á skerinu 45% af tekjum eyjanna eru í þeim geira.

Svipað má segja um Bahamas, þar er enginn eiginlegur skattur á hinn almenna verkamann/launþega en ofurtollar á neysluvörum í stað þeirra. Þeir borga sem nýta er mottóið og nánast allar nauðsynjar eru fluttar frá USA (mestmegnis Florida). Í eina skiptið sem ég hef komið til Bahamas þótti mér það afar fróðlegt og vasinn breyttist í tösku, ef svo má að orði komast.

En að ofansögðu, hvað er þá vandamál okkar á hinu margrómaða Íslandi?

Pólitík? Nei varla, ég varð vitni að ýmsu sem telst ga, ga á Bahamas, meira að segja okkar mælikvarði nær varla upp í það rugl sem viðgekkst þar.

Skattamál? Já það gæti verið og þá er næsta spurning; afhverju?

 

Skattar eru letjandi fyrirbrigði og það munu ávallt allir sem geta, reyna að forðast að borga meiri skatt en þeir þurfa.

Ríki sem eiga ekkert nema ferðamenn verða að ná tekjum inn á annan máta og það gera þessi svokölluðu og ,,vondu´´ skattaskjól, með því að laða að fjármagn og ofurtolla nauðsynjavörur.

Kannski, í öllu ferðamannabúmminu ættum við að velta þessum steini við og sjá hvað er undir honum? Þetta er ekki eini steinninn í fjörunni.

 

 


mbl.is Eiga verðbréf í skattaskjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórglæsilegur árangur

Það er tilhlýðilegt að hampa okkar frjálsíþróttarfólki þegar það heldur í víking. Það er ekki síðra að hampa því þegar hlutir ganga upp og það á að gera það, án refja.

Glæsilegur árangur!


mbl.is Hafdís og Arna unnu verðlaun á NM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apafréttamennska

Gott að vita til þess að 10 þúsund hafi komist af. Merkilegt er samt að vita til þess að þetta sé vegna einhvers sem enginn hefur áður séð en samkvæmt fréttinni þá munar viðkomandi ekkert um að troða þesari frétt og það með herkjum, upp á loftslagsbreytingar.


mbl.is Ísjaki veldur dauða 150 þúsund mörgæsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sindri Karl Sigurðsson

Höfundur

Sindri Karl Sigurðsson
Sindri Karl Sigurðsson
Jafn trúaður og við hin!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • Veitt og sleppt: Mesta auraþúfa stangveiðinnar
  • ...438_1166335
  • Veiða og sleppa hvað?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 27601

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband